Ég hef sagt það fyrir hverjar kosningar undanfarið, en það er aldrei brýnna en nú:
Elsku bestu fjölmiðlar, ekki eyða tíma og orku okkar kjósenda í að birta daglegar skoðanakannanir fram að kosningum.
Þá mun kosningabaráttan ekki snúast um annað þessa dýrmætu daga en viðbrögð við skoðanakönnunum.
Það mun gefa stjórnmálamönnunum kærkomið tækifæri til að leggjast í það karp og spælingar sem þeir njóta sín svo vel í, en sleppa því að fjalla um bæði nútíð og fortíð á ábyrgan hátt.
Gildi þessara skoðanakannana er hins vegar lítið sem ekkert - við vitum nú þegar nokkurn veginn hvernig landið liggur og fjörugar umræður um 1-2 prósenta tilfærslur í skoðanakönnunum gera ekki annað en draga athyglina frá því sem máli skiptir.
Úrræðum flokkanna. Og ábyrgð þeirra.
Blogg
EKKI FLEIRI SKOÐANAKANNANIR
11:12 › 18. apríl 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
