Í heita pottinum nú síðdegis hitti ég mann sem var mikið niðri fyrir.
Hann náði varla upp í nefið á sér af hneykslun yfir kosningakerfinu hér og því misrétti sem hér hafði ævinlega tíðkast.
Því að atkvæðisréttur er ekki jafn, heldur mjög misjafn eftir búsetu.
Maðurinn taldi að þetta óréttláta kerfi væri í reynd grundvöllurinn að allri stjórnmálaspillingu á Íslandi. Og var svartsýnn á að það tækist að breyta þessu.
Ég var alveg hissa. Ég hafði einhvern veginn talið alveg sjálfsagt að þegar stjórnarskránni verður breytt þá hljóti þetta misrétti að vera afnumið í eitt skipti fyrir öll með því að gera landið að einu kjördæmi.
Það lægi svo í augum uppi.
En kannski er það alls ekki víst.
Því ákvað ég að spyrjast fyrir hjá þeim stjórnmálaöflum sem nú bjóða fram í Alþingiskosningunum. Og sendi formönnum flokkanna fimm á Alþingi, sem og Borgarahreyfingarinnar og Lýðræðishreyfingarinnar eftirfarandi bréf:
"Ég er áhugamaður um jöfnun atkvæðisréttar á Íslandi.
Af því tilefni langar mig að beina til þín tveimur spurningum, og mun birta svörin á bloggsíðunni Trésmiðjunni sem ég held úti.
Spurningar eru:
Telur þú sjálfur að gera eigi allt landið að einu kjördæmi - eða hugsanlega jafna atkvæðisrétt ALGERLEGA með öðrum hætti?
Munt þú beita þér fyrir því að breytingar í þá átt taki gildi við þá endurskoðun stjórnarskrár sem brátt stendur fyrir dyrum?
Einföld svör óskast, já eða nei. Engin þörf er að flækja málið meira.
Með bestu kveðju,
Illugi Jökulsson"
Ég mun birta svörin hér á Trésmiðjunni. Það er að segja ef þau verða stutt og laggóð.
- - - -
Fyrsta svarið barst frá Borgarahreyfingunni. Það er hér að finna.
Blogg
EITT KJÖRDÆMI?
21:37 › 18. apríl 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
