Pyrrhus hét kóngur í gríska borgríkinu Epírus um 300 fyrir Krist. Hann þótti flinkur herforingi og var afar metnaðargjarn. Mest langaði hann að feta í fótspor Alexanders mikla og sigra stórþjóðirnar í austri.
Örlög hans urðu hins vegar að berjast við óvin miklu nær heimaslóðum.
Vestur á Ítalíu var nýtt stórveldi farið að hnykla upphandleggsvöðvana, Róm. Þeir Rómverjar réðust gegn grísku nýlenduborginni Tarentum á Suður-Ítalíu og Grikkir þar sendu út neyðarkall.
Pyrrhus sá hér tækifæri til að auka sína herfrægð. Hann sigldi með her yfir hafið milli Grikklands og Ítalíu og tók að slást við Rómverja.
Hann vann flestar sínar orrustur en Rómverjar voru samt svo seigir og ollu svo miklu manntjóni í her hans að Pyrrhus fór að hafa áhyggjur.
Eftir að hafa sigrað Rómverja við Asculum árið 279 er mælt að Pyrrhus hafi sagt að ef hann ynni fleiri slíka sigra væri úti um hann.
Síðan heitir það Pyrrhusarsigur ef sigurinn er svo dýrkeyptur að hann snýst að lokum upp í ósigur.
Nú fagnar Sjálfstæðisflokkurinn ógurlega þeim mikla sigri að hafa getað komið í veg fyrir breytingar á stjórnarskrá og stöðvað tillögur um stjórnlagaþing.
Tilgangur Sjálfstæðisflokksins er tvíþættur.
Í fyrsta lagi þarf að gæta þess að sægreifar og kvótakóngar missi ekki spón úr aski sínum með stjórnarskrárbreytingum í þá átt að auðlindir séu þjóðareign.
Í öðru lagi þykir sjálfstæðismönnum algjör ósvinna að þjóðin sjálf eigi með einhverjum hætti aðild að breytingum á stjórnarskrá.
Sjálfstæðismenn telja að Birgir Ármannsson og nótar hans séu til þess miklu hæfari en þjóðin.
Og þeir höfðu sigur, sjálfstæðismenn. Rétt eins og Pyrrhus tefldi fram stríðsfílum sínum við Asculum, þá sendu sjálfstæðismenn málþófsmenn sína í fremstu víglínu. Flissandi, syngjandi og bullandi stóðu þeir í ræðustól Alþingis þangað til ríkisstjórnin lét undan síga og ákvað að fresta málinu fram yfir kosningar.
Frægur sigur, ha?
Ja, nú hefur fólk tækifæri til að sýna Sjálfstæðisflokknum fram á að sigur hans yfir stjórnlagaþinginu hafi verið Pyrrhusarsigur.
Og sanna styrkþegunum í Valhöll að þjóðin verði ekki fremur bæld niður en hið uppvaxandi Rómaveldi fyrrum - þó að öðru leyti ætli ég ekki að líkja saman íslensku þjóðinni og Rómarríki.
Þetta verður hægt að gera í kjörklefanum eftir rúma viku.
Af Pyrrhusi er það að segja að hann dó að lokum þegar gömul kellíng fleygði þakhellu í hausinn á honum.
Blogg
PYRRHUSARSIGUR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS?
09:13 › 17. apríl 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
