ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.7° 4m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

ILLT Í HJARTA

23:22 › 17. apríl 2009


Í dag hitti ég hjartalækni sem sagði mér að traffík hefði dregist saman hjá flestum læknum síðan Davíðshrunið hófst um mánaðamótin september/október.

Bæði hefði vinnuslysum og vinnusjúkdómstilfellum fækkað, einfaldlega út af atvinnuleysinu, og einnig færi fólk greinilega síður til læknis en áður.

Það er nöturleg niðurstaða eftir valdatíð nýfrjálshyggjunnar.

Að fólk spari við sig læknisferðir.

En hjartalæknirinn sagði mér reyndar að einn hópur sérfræðinga hefði meira að gera en nokkru sinni fyrr síðan Davíðshrunið hófst.

Það eru hjartalæknar.

Aukið stress og áhyggjur hafa stóraukið hjartsláttartruflanir af öllu tagi, en ekki nóg með það. Tilfellum kransæðasjúkdóma hefur líka fjölgað. Hann sagði að það væri líka stresstengt.

Mér skilst að hjá geðlæknum sé líka allt vitlaust að gera. Kvíðinn er að leika marga illa.

Félegur vitnisburður, eða hitt þó heldur, um 18 ára slímsetu nýfrjálshyggjunnar í valdastólum.




ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?