ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.7° 4m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

N1 SJÓNVARPSAUGLÝSING?

13:05 › 17. apríl 2009


Ég sá í gærkvöldi sjónvarpsauglýsingu frá Sjálfstæðisflokknum. Loftmyndir af Reykjavík meðan þulur talaði um að "nýta auðlindirnar", ef ég man rétt.

Boðaði sem sagt álver.

Voða brýnt núna, eða þannig.

En það sem mér fannst merkilegast var hvað auglýsingunni með þessum loftmyndum svipaði ótrúlega mikið til auglýsingaherferðar N1 sem gekk hvað lengst í fyrra eða hitteðfyrra.

Þegar lógó N1 útbíaði allt landslag á Íslandi og laumaði sér alls staðar inn í borgarmyndina.

Var ekki Bjarni Benediktsson þá ennþá hæstráðandi N1?

Ég stóð mig að því að vera farinn að skima eftir lógói N1 meðan þulur Sjálfstæðisflokksins malaði um álverið.

Er þetta tilviljun? Eða mín ofskynjun?





ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?