ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.7° 4m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

FRAMSÓKN BER LÍKA SÖK

18:33 › 17. apríl 2009


Hérna er ágæt útlistun Herðubreiðar um hvers vegna Framsóknarflokkurinn gafst skyndilega upp á að hamla gegn málþófi Sjálfstæðisflokksins gegn stjórnlagaþingi og stjórnarskrárbreytingum.

Ég verð að viðurkenna að ég hafði ekki áttað mig fyllilega á þætti Framsóknarflokksins. Mér fannst eins og ríkisstjórnin sjálf hefði einfaldlega gefist upp gagnvart hótunum styrkþeganna í Valhöll um málþóf út í það óendanlega.

Því er ágætt að Herðubreið haldi þessu til haga.

Framsóknarflokkurinn á sinn part af skömminni af því að ekki væri hægt að útkljá stjórnarskrármálið.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?