Ég held að Illugi nafni minn Gunnarsson sé ljómandi gáfaður maður. Og í eðli sínu alls ekki slæmur pólitíkus.
Þeim mun sorglegra er það að sjá hann leggja sig niður við þessa vitleysu:
Að þykjast trúa því að það geti verið marktæk pólitík á Íslandi nú að taka einhliða upp evru, en að vísu ekki alveg einhliða, heldur í góðri samvinnu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og Evrópusambandið.
Þetta er auðvitað bara eintóm tjara, eins og Illugi Gunnarsson veit fullvel. Hann er einn þeirra manna í Sjálfstæðisflokknum sem best þekkja til Evrópusambandsins og veit því að líkurnar á því að þetta sé hægt eru núll.
Nákvæmlega núll komma núll. Engin skekkjumörk þar.
Samt lætur nafni minn sig hafa það að bjóða upp á þetta átta dögum fyrir kosningar.
Þetta er auðvitað bara örvæntingarfullt ráð Sjálfstæðisflokksins til að reyna að halda í einhverja þá sem nú yfirgefa flokkinn af því hann getur ekki boðið upp á sannfærandi stefnu hvorki í Evrópumálum né peningamálum. Þetta er svona brellupólitík, mjög í stíl við annað í kosningabaráttu flokksins um þessar mundir.
Abrakadabra: Fella niður skuldir! Jess!
Hókuspókus: Allar mögulegar skattahækkanir út í hafsauga, já, púff púff!
Og nú þetta.
"Í samvinnu við Alþjóðgjaldeyrissjóðinn og Evrópusambandið."
Þetta væri fyndið ef það væri ekki bara lágkúrulegt af stjórnmálaflokki að bjóða upp á þetta sem alvöru stefnu í alvöru máli. Þetta er kannski svona álíka og ef ég lýsti því yfir að ég ætlaði mér að verða ríkastur í heiminum, í góðri samvinnu við Jóakim Aðalönd og Gull-Ívar Grjótharða.
Blogg
Æ, NAFNI MINN!
20:46 › 17. apríl 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
