ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.7° 4m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

ÍSLAND ER LÚTON

18:54 › 16. apríl 2009


Áðan tölti ég niður í bæ að kaupa hrísgrjón.

Þá rakst ég á Bjarna Benediktsson formann Sjálfstæðisflokksins. Mynd hans var á plakati á strætóskýli. Í textanum var lagt til að við skyldum "nýta auðlindir landsins".

Á íslenskri pólitísku þýðir það "álver".

Einmitt, rétti tíminn til þess núna að reisa álver, Bjarni!?

En ætli við hljótum ekki að vera búin að læra okkar lexíu síðan Halldór Ásgrímsson lofaði Austfirðingum álveri með fulltingi Sjálfstæðisflokksins.

Afraksturinn var stórslysið Kárahnjúkavirkjun.

Nei takk, Bjarni, ómögulega.

En reyndar varð ég hissa á myndinni á plakatinu. Bjarni virtist nefnilega frekar órólegur á myndinni, þó hann reyndi að brosa.

Það var næstum eins og hann væri hræddur.

Það er líka skiljanlegt. Af hverju er hann að tromma upp sem forsætisráðherraefni Sjálfstæðisflokksins? Ég bara skil það ekki. Ég efast ekki andartak um að hann sé prívat og persónulega hinn besti piltur. En hefur hann sýnt eða gert eða sagt eitthvað sem bendir til þess að hann sé maðurinn sem Ísland þarf nú á að halda?

Ég held ekki. Og mér sýndist svipurinn á Bjarna á myndinni benda til þess að innst inni væri hann heldur ekki sannfærður um það.

En umfram allt þarf flokkurinn hans auðvitað að taka sér langt frí frá landstjórninni.

Af því sjálfstæðismenn eru stundum gjarnir á líkingamál úr íþróttum, þá má kannski notast við þetta:

Árið 2007 töldu Íslendingar sig vera Manchester United að berjast til sigurs í Meistaradeildinni.

Svo vel gekk samfélagið, svo rík vorum við - eða töldum okkur vera. Undir stjórn þjálfarans knáa, Sjálfstæðisflokksins!

Nú erum við Lúton.

Dottin úr Fjórðu deildinni gömlu. Komin í Utandeildina.

Ef þetta kæmi fyrir fótboltalið, haldiði ekki að sjálfstæðismenn myndu skilja þörfina fyrir að reka þjálfarann?

Að þessu spurði ég Bjarna Benediktsson í huganum meðan ég gekk framhjá strætóskýlinu.

Hann svaraði náttúrlega engu.




ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?