ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.7° 4m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

PÓLITÍSK AÐGERÐ?

13:07 › 15. apríl 2009

Ég lét einhver orð falla á vinnustaðnum í morgun um hvílíkur óþarfi það væri að lögreglan skyldi ráðast gegn hústökufólkinu á Vatnsstígnum.

Kona ein á vinnustaðnum var hneyksluð.

"Það er fólk sem á þetta hús. Það hlýtur að mega ráða því hverjir eru í húsinu," sagði hún. Eða eitthvað mjög í þá áttina.

Rétt er það, svona oftast nær. Ef fólk settist að í mínu húsi meðan ég brygði mér bæjarleið þætti mér það ekki sniðugt. En þegar um er að ræða niðurníddan hjall sem enginn hefur sinnt um í lengri tíma, þá gegnir svolítið öðru máli.

Eins og einhvers staðar var bent á: Lögreglan hefur ekki hirt að ráði um það þótt eiturlyfjasjúklingar og ógæfufólk setjist upp í tómum húsum í miðbænum. Eigendurnir hafa yfirleitt líka látið sér það í léttu rúmi liggja.

Að minnsta kosti eru menn ekkert að flýta sér að reka slíkt fólk út.

Og margir hafa orðið til að varpa fram grunsemdum um að Björgólfar og fleiri auðmenni beinlínis sækist eftir því að fá slíkt lið til að setjast að í tómum húsum - til að hræða nágranna til að selja eignir sínar og gera verktökum auðveldara að eignast eftirsóttar lóðir á góðu verði.

En nú, þegar hópur ungmenna sest að í einu svona húsi og kallar það pólitíska aðgerð, þá er allt í einu mjög brýnt að reka þau út.

Aðgerðir lögreglunnar voru sem sagt árétting á einkaréttinum og pólitísk aðgerð. Er það ekki?

 



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?