Nú sýnir ný skoðanakönnun enn fylgi meirihluta þjóðarinnar við nýtt álver í Helguvík.
Fyrirgefiði krakkar mínir, en er eitthvað að? Er blinda til dæmis orðinn faraldur á Íslandi? Eða sá alræmdi og óttalegi sjúkdómur heilaskreppa?
Í mörg herrans ár skrifaði ég árangurslausa pistla gegn Kárahnjúkavirkjun og álverinu á Reyðarfirði. Ég hélt hins vegar að nú hefði runnið upp fyrir okkur ljós, og slíkt rugl kæmi ekki framar til greina.
Þarf ég virkilega að telja hér upp röksemdirnar gegn álverinu?
Látum duga tvennt: Að raforkuverðið til álveranna er svo hraksmánarlega lágt að gróðinn af þeim fyrir okkur er enginn. Og hitt að mörg næstu ár mun álverð ekki vera neitt til að hrópa húrra fyrir.
Þá er ekki talin mengunin frá álverum, umhverfisspjöll af virkjunum þeim sem þjóna þeim, innantóm þensluáhrif á byggingartíma, vafasöm félagsleg áhrif, etc.
Á sama tíma og stuðningur þjóðarinnar við álversruglið er býsna öruggur, þá sýnir svo önnur skoðanakönnun að meirihluti þjóðarinnar er nú á móti aðildarviðræðum við Evrópusambandið.
Þótt öllum beri nú saman um að íslenska krónan sé handónýtur gjaldmiðill og við verðum bókstaflega að fá nýjan gjaldmiðil. Og þá kemur evran einna helst til greina, og því lífsnauðsynlegt að fá að vita hvað aðild að ESB hefði í för með sér. Sem gerist aðeins í viðræðum við sambandið.
En nei, meirihlutinn vill ekki einu sinni aðildarviðræður.
Já, ég spyr aftur, er eitthvað sérstakt að?
Blogg
ER EITTHVAÐ AÐ?
10:55 › 11. apríl 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
