ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.7° 4m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

INGIBJÖRG SÓLRÚN

21:15 › 8. mars 2009


Ingibjörg Sólrún á vafalaust eftir að vinna margt gagnlegt starfið, hvort sem það verður á sviði hefðbundinna stjórnmála eða á öðrum vettvangi, þegar hún verður komin til heilsu á ný.

Mér þótti augljóst að hún ætti að taka sér hlé af pólitískum ástæðum. Í stjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks gerði hún nokkur mjög afdrifarík mistök, sem hún hlaut að axla ábyrgð á.

Að halda fast við öryggisráðsframboðið í stað þess að sinna málum hér heima.

Að fljóta sofandi að feigðarósi í efnahagsmálum.

Að tukta ekki Sjálfstæðisflokkinn strax til verka eftir hrunið.

Það er hins vegar til marks um hve öflug Ingibjörg Sólrún er sem stjórnmálamaður og manneskja að með viðtalinu á Skjá einum á laugardag hafði henni eiginlega tekist að fá mig til að skipta um skoðun.

Það virtist allt í einu tómt rugl að vilja að svo gáfuð og heiðarleg og hreinskiptin manneskja drægi sig í hlé meðan alls konar sótraftar væru á sjó dregnir.

En nú hefur heilsan tekið af henni ráðin um skeið.

Vonandi nær hún sér sem fyrst; þá verður hún eflaust boðin velkomin til starfa á ný.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?