ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.7° 4m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

FIMM AF SEX

10:48 › 8. mars 2009


Ég er eiginlega staðráðinn í að láta fréttir af prófkjörum og skoðanakönnunum fyrir kosningarnar sem mest framhjá mér fara.

Ég vona líka heitt og innilega að fjölmiðlamenn muni sýna þann þroska að gera slíkar fréttir ekki að meginatriðum flestra fréttatíma fram að kosningum. Það er mjög billeg en um leið gamaldags lausn á því á hvernig á að fylla fréttatíma að fabúlera bara út í það óendanlega um síðustu skoðanakönnunina.

En stjórnmálabarátta snýst ekki um skoðanakannanir, heldur um viðbrögð stjórnmálaflokkanna við ástandinu í landinu.

Að svo mæltu ætla ég samt að beygja örlítið mín prinsip, og lýsa því yfir hvað mér finnst merkilegt og skemmtilegt hvað Vinstri grænir í Reykjavík eru kvenvænir. Af sex efstu í prófkjörinu eru fimm konur.

Það er gaman. Vinstri grænir kjósendur virðast vera fordómalausari en almennt er. Amk kjósendurnir í Reykjavík!

Og sama má segja um forvalskjósendur Framsóknar í kraganum, þar sem fimm konur lentu í fimm efstu sætum.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?