Partur af því sem þarf að breyta í þessu samfélagi er áherslan á stjórnmálaflokkana og þeirra oft gæfulitlu slagsmál hver við annan.
Ókei, við getum kannski fallist á að kjósa ykkur, en fyrir mína parta nenni ég hins vegar ekki að heyra endalausar fréttir af hefðbundnum hanaslag.
Þess vegna þoli ég ekki prófkjörsfréttir. Hver er að spæla hvern. Hver er að vinna í hanaslagnum?
Og ég er alveg að missa þolinmæðina gagnvart fréttum af skoðanakönnunum.
Það er enn einn og hálfur mánuður til kosninga og samt er fabúlerað fram og til baka í fjölmiðlunum um niðurstöður í skoðanakönnunum dag eftir dag.
Er Samfylking að dala? Er hún að sækja í sig veðrið? Er Sjálfstæðisflokkurinn stærstur? Hvar er VG á vegi statt? Hefur Framsóknarflokkurinn einu prósenti meira eða minna?
Innilega óintressant.
Ég vil fá að heyra af hugmyndum stjórnmálaflokkanna, og einkum gjörðum þeirra.
Ekki prófkjörsprat og nagasúpu skoðanakannana.
Fjölmiðlar gjöri svo vel og athugi það.
Ég held nefnilega ég sé ekki einn um þessa skoðun.
Blogg
BURT MEÐ HANASLAGSFRÉTTIR!
17:14 › 6. mars 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
