Í gær sagði ég í pistli að vefritið Eyjan "mætti líklega vara sig ef hún ætlar að halda svona áfram". Og átti við að orðalag á frétt um fylgistap Samfylkingar væri full hressilegt. Því þar var það kallað "skellur" og "dýfa" þegar fylgi Samfó minnkaði um rúm þrjú prósent.
Allir nema ofsatrúarmenn í íslenskri flokkapólitík sjá auðvitað að orðalagið um að Eyjan "mætti líklega vara sig" átti við trúverðugleika Eyjunnar sjálfrar. Að hún yrði ekki notuð sem vopnuð í einhverri flokkapólitík.
Raunar er ég viss um að Eyjumenn hafi sjálfir áttað sig á að þessu, og muni gæta þess að láta ekki blanda vefritinu sjálfu í flokkapólitík fyrir kosningarnar í apríl.
Og standa sig vafalítið með prýði.
Það má geta þess að ég hefði gert alveg sömu athugasemd ef einhver annar flokkur hefði verið sagður hafa orðið fyrir "skelli" við ekki meira fylgistap milli tveggja kannana.
Þetta var altso ekki sagt af samúð með Samfylkingunni, enda má vissulega finna reglulegar hnútur í hennar garð á Trésmiðjunni.
Amx-vefur Óla Björn Kárasonar og félaga kýs hins vegar að misskilja þessa athugasemd mína og segir í kjaftadálki:
"Eyjan verður sem sé að tala fallega um Samfylkinguna, annars á hún
Illuga á fæti – eða hverju öðru er hann að hóta? Býr hann yfir
einhverju leynivopni?"
Böring, böring, böring ...
Óli Björn og strákarnir vita miklu betur en þetta.
Blogg
BÖRING, BÖRING, BÖRING ...
10:24 › 6. mars 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
