Það var gaman að geta átt þátt í að Þorvaldur Gylfason hagfræðingur fengi menningarverðlaun DV í ár í flokki "fræða" fyrir skrif sín um hagfræði og efnahagsmál undanfarin ár.
Ég sat í nefndinni sem ákvað þessi verðlaun ásamt Ragnheiði Gyðu Jónsdóttur og Viðari Hreinssyni.
Bara ef stjórnvöld hefðu hlustað betur á Þorvald, þá hefði hrunið áreiðanlega ekki átt sér stað eða orðið altént miklu vægara.
Þorvaldur átti í höggi við mjög öfluga keppinauta í fræðaflokknum. Þar voru Guðrún Ása Grímsdóttir fyrir útgáfu sína á Ættfærslubók séra Jóns í Hítardal, Guðmundur Eggertsson fyrrum prófessor fyrir bók sína um uppruna lífsins, Halldór Björnsson sérfræðingur á Veðurstofu fyrir bók sína um gróðuhúsaáhrif og síðast en ekki síst Kristmundur Bjarnason fyrir frábæra ævisögu sína um Grím Jónsson amtmann.
Allir þessir fræðimenn hefðu verið mjög vel að verðlaununum komnir, þótt Þorvaldur einn fengi þau.
Auðvitað litum við nefndarmenn í úthlutunarnefndinni að vissu leyti á Þorvald sem fulltrúa annarra hagfræðinga sem einnig reyndu að vara okkur við.
En þeir voru reyndar ekki margir til að byrja með svo hlutskipti hans var vafalaust frekar einmanalegt lengi vel. En svo fór þeim raunar fjölgandi.
Fyrst og fremst fékk Þorvaldur þó auðvitað menningarverðlaunin fyrir sín eigin góðu skrif - í blaðagreinum, tímaritum og bókum.
Sérlega lofsvert er að skrif Þorvaldar í dagblöðum hafa ævinlega verið sniðið fyrir almenning og auðskiljanleg hverjum manni. Það vill líka svo skemmtilega til að í dag birtir Fréttablaðið mjög skilmerkilega og fína grein eftir Þorvald þar sem hann telur upp tíu lærdóma sem við getum dregið af hruninu núna - og hvað gera þarf til að tryggja að slíkir atburðir endurtaki sig ekki.
Ungur sonarsonur Þorvaldar mætti til að taka við menningarverðlaununum fyrir hönd afa síns, enda er Þorvaldur löglega forfallaður erlendis - staddur í Túnis að hjálpa Alþjóðagjaldeyrissjóðnum að kippa málum þar um slóðir í lag.
Vonandi fáum við hér líka að njóta starfa Þorvaldar Gylfasonar á næstunni með einum eða öðrum hætti.
Blogg
VERÐLAUN HANDA ÞORVALDI
07:41 › 5. mars 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
