ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.7° 4m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

NÚ MÁ HVÍSLA HÚRRA

15:25 › 5. mars 2009


... að það skuli vera búið að afnema eftirlaunaósómann!

Í 16 mánuði braut Birgir Ármannsson heilann um hvernig það væri eiginlega hægt. Og komst ekki að neinni niðurstöðu.

Loksins eftir Davíðshrunið, þá var hægt að ganga í að aðeins svona breyta svolítið þessum lögum, en það var ennþá alveg ómögulegt að afnema þau bara.

Það var alltof flókið mál!

En nú er bara allt í einu búið að afnema þennan smánarblett. Bara eins og ekkert sé einfaldara.

Það má hvísla húrra fyrir því, hvað sem öðru líður!



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?