Mamma var að enda við að fá heiðursverðlaun Fréttablaðsins sem afhent voru í Þjóðmenningarhúsinu áðan.
Þessi heiðursverðlaun eru partur af samfélagsverðlaununum sem Fréttablaðið veitir nú í fjórða sinn.
Rökstuðningurinn gekk út á að Jóhanna Kristjónsdóttir fengi verðlaunin bæði fyrir að eyða fordómum í garð Araba- og múslimaþjóða hér á landi, sem og það ómetanlega starf sem hún hefur unnið í þágu örsnauðra stúlkubarna suður í Jemen - en þar hefur starf hennar gert mörgum stúlkum kleift að fá menntun, húsaskjól og mat sem annars hefði ekki verið kostur á.
Kjör fátækra Jemena eru þannig að sama hvað kreppan verður hörð hér næstu mánuði, við erum ævinlega miklu, miklu betur stödd en það.
Og vonandi að kreppan dragi ekki úr þeim glæsilega stuðningi sem íslenskur almenningur hefur veitt starfi mömmu þar suður frá.
Ég hvet alla til að kíkja á bloggsíðuna hennar, þar sem starfið í Jemen er kynnt - kíkið á "Um Fatímusjóðinn" hægra megin á síðunni:
http://johannaferdir.blogspot.com/
Til lukku, mamma!
Blogg
MAMMA FÆR VERÐLAUN!
18:23 › 5. mars 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
