"Nígeríumenn norðursins"?
Við erum víst að verða þekkt undir því heiti í öðrum löndum, að minnsta kosti í fjármálageirum.
Bissnissmennirnir okkar og bankamennirnir nú almennt viðurkenndir sem svindlarar og bjánar.
Auðvitað er það alls ekki í öllum tilfellum verðskuldað, en almáttugur minn, hvað þetta er mikill álitshnekkir.
Og álitshnekkir er alltaf slæmur, jafnt fyrir þjóðir sem einstaklinga.
Við sem héldum að við værum séní.
Og því var líka stíft haldið að okkur. Við vorum að sigra heiminn.
Það gæti reyndar verið ágætis skemmtiefni að sýna í einu lagi ýmsar þær sjónvarpsauglýsingar sem helstu útrásarfyrirtækin og bankarnir hafa sett saman (með ærnum tilkostnaði) á undanförnum árum um eigið ágæti.
Svo gætum við fengið að kjósa "bestu" auglýsinguna.
Eftir á að hyggja væri þetta líklega ekki beinlínis skemmtiefni. Ég hugsa að við myndum fara ansi rækilega hjá okkur. En þetta gæti verið áminning um hverfulleika gæfunnar ... eða eitthvað svoleiðis ...
Blogg
MEGUM VIÐ FÁ AÐ SJÁ AUGLÝSINGARNAR AFTUR?
08:01 › 4. mars 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
