Eitt er það sem mér finnst alltaf merkilegt þegar yfir gengur óveður eins og nú hefur geisað á Vestfjörðum undanfarin dægur.
Að ef sams konar veður hefðu gengið yfir fyrr á tíð, þá er líklegt að fjöldi manns hefði látið lífið.
Raunar þarf ekki að fara langt aftur í tímann til að finna hryggileg dæmi um skelfileg slys í óveðrum á Vestfjörðum, en ég er nú fyrst og fremst að hugsa lengra aftur í aldir.
Veður sem við tökum varla eftir nútildags, eða gera í versta falli ekki annað en pirra okkur svolítið með lokuðum vegum stundarkorn eða sviptivindum yfir Hafnarfjalli, þau veður hefðu getað ráðið niðurlögum tuga sjómanna áður fyrr.
Þeirra sem lögðu á hafið í sínum litlu vanbúnu bátsskeljum.
Og fjöldi barna hefði orðið föðurlaus.
Það má nú þakka fyrir ýmislegt, stundum.
Blogg
MARGIR HEFÐU LÁTIÐ LÍFIÐ
10:55 › 4. mars 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
