ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.7° 4m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

HVAÐ ER AÐ ÞESSUM HAGFRÆÐINGUM?!

18:36 › 4. mars 2009


Í gærkvöldi horfði ég á Kenneth Rogoff hagfræðiprófessor í viðtali við Boga frænda minn í sjónvarpinu, og trúði hverju einasta orði.

Líka því að það hefði verið skelfilegt fyrir okkur ef við hefðum verið nýkomin með evru þegar hrunið skall á, og það væri "efnahagslegt sjálfsmorð" ef við tækjum upp evru núna, meðan afleiðingar hrunsins væru sem verstar.

Rogoff er stórmeistari í skák og virtist firna gáfaður, svo hvernig gat maður annað en trúað honum?

En í Speglinum í útvarpinu áðan var okkar maður Gylfi Zoega mættur og gjörsamlega tætti niður allar röksemdir Rogoffs.

Það lá við að hann hæddist að stórmeistaranum; að minnsta kosti þóttist ég heyra örlítið glott á vörum hans gegnum útvarpið ...

Það var þegar Gylfi spurði sjálfan sig hvað Íslendingar myndu gefa fyrir að vera án verðtryggingar, með 3-4 prósent vexti og bakhjarl í evrópska seðlabankanum eins og Írar með sína evru.

Þeir eru stundum alveg ómögulegir, þessir hagfræðingar! Maður veit ekkert hverjum á að trúa.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?