Maður á ekkert að kippa sér of mikið við lítilsháttar málvillur á netinu, svo fremi sem þar sé almenningur að skrifa. Það er ástæðulaust að gera kröfu til þess að allir kunni málfræði og stafsetningu upp á tíu.
En um stóru fréttavefina gegnir allt öðru máli. Þeim ber alveg sama skylda og dagblöðunum eða ljósvakamiðlunum til að vanda sitt mál svona eins og kostur er.
Því miður virðast prófarkalesarar ekki starfa á þessum miðlum. Að minnsta kosti sleppa fáránlegar villur oft í gegn. Mér skilst að mbl.is hafi verið sérstaklega slæmur til að byrja með, en nú upp á síðkastið sýnist mér að ljótustu villurnar séu yfirleitt á visir.is.
Til dæmis þetta sem birtist áðan:
"Okkur var aldrei boðið mútur"
Þetta er ekki haft eftir starfsmönnum Fjármálaeftirlitsins, heldur handboltadómurum.
En það skiptir ekki öllu, heldur hitt að villan í þessari setningu er auðvitað glórulaus.
Blogg
ALDREI BOÐIÐ MÚTUR
12:10 › 4. mars 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
