Margeir Pétursson var - svo ég segi nú hverja sögu eins og hún var - ekki vinsælasti stórmeistari Íslendinga í skák.
Allir viðurkenndu seiglu hans, útsjónarsemi í erfiðum stöðum og aðgæsluhæfileika. En flestir kusu heldur að fylgjast með djarfari skákmönnum.
Sannleikurinn var þó sá að Margeir hafði að sumu leyti dýpri skilning á skák en flestir Íslendingar aðrir. Og hann náði líka hvað eftir annað frábærum árangri.
Þegar hann gerðist bankamaður bar lengi vel lítið á honum. Þegar forkólfar stóru bankanna fóru í sitt gönuhlaup með útrásarvíkingunum vissi maður lítið um hvað Margeir væri að hafast að.
Nú virðist hann standa með pálmann í höndunum. Eins og svo oft gerðist við skákborðið.
Blogg
MARGEIR PÉTURSSON
17:17 › 30. mars 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
