Ég var að renna yfir pistil Styrmis Gunnarssonar á vefsíðunni amx.is og sá þar að hann túlkar niðurstöðu landsfundar Sjálfstæðisflokksins í Evrópumálum sem sögulegan sigur andstæðinga ESB-aðildar.
Það vakti athygli mína á því að ég hafði ekki minnstu hugmynd um hver var niðurstaða landsfundar Sjálfstæðisflokksins í Evrópumálum var.
Sem mér fannst dálítið skrýtið.
Sjálfstæðisflokkurinn, sjálfur valdaflokkur Íslands undanfarna áratugi, heldur landsfund og tekst einhvern veginn að leiða þannig til lykta stærsta utanríkismál Íslands nú á tímum að sú niðurstaða fór a.m.k. gjörsamlega framhjá mér.
Hver er stefna hinnar nýju forystu Sjálfstæðisflokksins í Evrópumálum?
Jú, ég gáði í stjórnmálaályktunina.
"Við teljum að við núverandi aðstæður sé hagsmunum þjóðarinnar best borgið utan Evrópusambandsins ..."
Ókei ... en hvar eru röksemdirnar fyrir því?
Tja, þær eru engar. Þetta er bara skoðun "okkar". Allra sjálfstæðismanna væntanlega.
En svo kemur klausa um að ef ríkisstjórn og Alþingi ákveði að sækja um aðild að ESB þá skuli kosið um það.
Væntanlega þýðir þetta hina undarlegu tvöföldu atkvæðagreiðslu sem engin þjóð í Evrópu hefur talið nauðsynlega, en þarf kannski að tromma upp með hérlendis til að friða íhaldsseggi.
Þessi tvöfalda atkvæðagreiðsla er auðvitað algjör óþarfi. Hin raunverulega atkvæðagreiðsla fer fram þegar þjóðin kýs um niðurstöðu aðildarviðræðna. Þá fyrst höfum við forsendur til að sjá hvort aðild hentar okkur, eða ekki. Hugsanleg fyrri atkvæðagreiðsla er bara út í loftið.
En fyrst niðurstaðan var þessi mikli sigur Styrmis og félaga, hver er þá stefna Sjálfstæðisflokksins í peningamálum?
Bjarni Benediktsson, hinn nýi formaður, hefur sjálfur látið svo um mælt að krónan sé ónýt. Hver er þá stefnan?
Blogg
HVER ER STEFNA SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS Í PENINGAMÁLUM?
14:39 › 30. mars 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
