ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.7° 4m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

ÁBENDING TIL PÓLITÍSKRA BLOGGARA

13:10 › 30. mars 2009


Til pólitíkra bloggara, bæði þingmanna og annarra sem blogga til stuðnings stjórnmálaflokkum.

Stillið ykkur í guðanna bænum um að nota orðið "glæsilegt" þegar þið fjallið um landsfundi og aðrar uppákomur flokkanna.

Maður fær hálfgerðan aulahroll, eins og það heitir nú á dögum.

En þetta orð dúkkar upp aftur og aftur, hjá öllum stjórnmálaflokkum.

"Glæsileg samstaða, glæsilegt andrúmsloft, glæsilegir ræðumenn, glæsilegir frambjóðendur, glæsilegur fundur, glæsileg forysta."

En í bili er ósköp lítið "glæsilegt" við íslenska stjórnmálaflokka.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?