ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.7° 4m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

KRÓNAN ER KAPÚTT ...

15:20 › 3. mars 2009


... segir blaðamaður Vanity Fair í umfjöllun sinni um Wall Street á túndrunni.

Þetta er fín grein, þótt Michael Lewis hefði nú alveg mátt gera sér grein fyrir því að á Íslandi er engin túndra.

Túndra er sífreri að síberískum hætti; það er hvergi túndra á Íslandi.

En hitt er rétt hjá Lewis að krónuræfillinn okkar er kapútt - dauður.

Þetta eru reyndar öngvar fréttir fyrir okkur; við höfum vitað þetta eða mátt vita þetta lengi.

Meira að segja ég, rati í hagfræði sem ég er, er búinn að vita þetta í tvö ár eða svo!

Gott væri nú að fá að heyra hvaða hugmyndir stjórnmálaflokkarnir hafa um hvað eigi að vera við líkið af krónunni.

Við vitum hvað Samfylkingin vill; kasta hræinu fyrir borð og taka upp evru.

Við vitum að VG vill það ekki, eða að minnsta kosti helst ekki. Við vitum aftur á móti ekki hvað VG vill þá í staðinn.

Við vitum eða héldum okkur vita að Framsóknarflokkurinn vilji aðild að Evrópusambandinu ef til vill kannski einhvern tíma ef veður leyfir.

Við vitum ekki hvað Sjálfstæðisflokkurinn vill.

En það er tímabært að þeir upplýsi okkur um það.

Ég er ekki að biðja um langar rökræður sem trufla ráðamenn frá nauðsynlegum björgunaraðgerðum fyrir fólkið í landinu.

Bara einfalt svar við einfaldri spurningu:

"Hvað mynt viltu hafa á Íslandi í framtíðinni?"



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?