ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.7° 4m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

HVER ER SANNLEIKURINN Í MÁLINU?

17:57 › 3. mars 2009


Björgólfur Thor sagði í frægu viðtali við Kompás í haust að Landsbankanum hefði staðið til boða að færa Icesave-reikningana til Bretlands bara ef bankinn borgaði 200 milljónir punda, eða hvað það var.

Eitthvert klink, alla vega.

En það hefði strandað á Seðlabankanum og/eða íslenskum stjórnvöldum.

Þessu trúðum við lengi síðan. Enda dró enginn þetta til baka, svo ég muni. Alla vega ekki af neinni sannfæringu. Ekki einu sinni Davíð.

Og engum - hvorki fjölmiðlamönnum né stjórnmálamönnum né embættismönnum - virtist detta í hug að spyrja Breta hvort þetta væri rétt.

Fyrr en Lilló gerði það og fékk þau svör að þetta væri bara vitleysa.

Les: Lýgi í Björgólfi Thor.

Til að gera hlut gamla Landsbankans skárri.

Þá sprettur fram Halldór J. Kristjánsson fyrrum bankastjóri Landsbankans og segir að þessi díll við Breta hafi víst verið í pípunum, en fyrst Seðlabankinn reiddi ekki fram aurana, þá varð ekkert úr og þess vegna kannast Bretar nú ekki við að samkomulag um þetta hafi verið gert.

Nú væri skemmtilegt ef einhver tæki sig til og kannaði hver væri sannleikurinn í málinu.

Og enn skemmtilegra væri ef við þyrftum ekki að bíða í fjóra mánuði eftir svarinu.

(Ég skal að vísu fúslega viðurkenna að ég hef sjálfur ekki tíma eða þekkingu til að kafa í málið! Ég lýsi því sök á hendur sjálfum mér fyrir að standa mig ekki á þessu sviði.)

Kannski kemur svarið í Kastljósi í kvöld.

En meðal annarra orða - hvar er Björgólfur Thor?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?