ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.7° 4m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

OG KOM ÞÁ VORIÐ?

08:54 › 20. mars 2009


Þegar ég kom út í morgun sungu fuglar í trjám og einhvers staðar utan úr garði barst vottur af vori með moldarlyktinni. Og ég þóttist líka sjá vor á skýjafarinu, og það var ósvikið vorhljóð í bílunum sem keyrðu niður götuna.

Það var greinilega vordagur í uppsiglingu; kannski frekar hryssingslegur vordagur, en vordagur samt.

Gerið svo vel að misskilja mig ekki. Yfirleitt er ég ekki einfeldningslegur aðdáandi vorsins.

En getur verið að hann sé liðinn, þessi vetur rauna vorra, þessi tíðindasamasti vetur lýðveldissögunnar?

Og hér erum við enn - living and partly living, eins og skáldið sagði. Og höfum tóm til að hlusta á fuglasöng?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?