Ég hef sagt það áður og ég segi það enn: Ég á mjög erfitt með að þola mikið tal um skoðanakannanir. Það er í reynd alveg steingelt umræðuefni.
En stundum brýtur maður jafnvel sín eigin prinsip svo látum það vaða:
Samfylkingin er stærsti stjórnmálaflokkurinn í dag, eða öllu heldur heldur í gær, samkvæmt skoðanakönnun sem þá var birt.
Að vísu getur margt breyst fram að kosningum blablabla ... (svona á maður alltaf að tala um skoðanakannanir)
En skýringin á því að fólk lýsi stuðningi við Samfylkinguna er fyrst og fremst sú að stór hluti Íslendinga lítur á sig sem hófsama jafnaðarmenn, og Samfylkingin var stofnuð handa slíku fólki.
Auk þess sem harðir ESB-sinnar hafa vart í önnur hús að venda en til Samfó um þessar mundir.
Skýringin á fylgi Samfylkingar er hins vegar EKKI gífurleg almenn ánægja með frammistöðu Samfylkingar síðustu misserin, frambjóðendur og talsmenn Samfylkingar ættu ekki að gleyma því.
Og ættu þess vegna ekki að vera of ánægðir með sig, takk fyrir.
Þeir þurfa að vinna fyrir því fylgi sem þeir munu fá.
Og þeir ættu til dæmis ekki að koma fram í sjónvarpi með gamla sjálfsánægjuglott íslenska fyrirgreiðslupólitíkussins.
Eins og Kristján Möller gerði í Tíufréttum Sjónvarpsins í gærkvöldi.
Þegar hann var kominn austur á fjörðu að prata eitthvað um jarðgöng og kjördæmapot fyrir kosningarnar.
Og var spurður af sjónvarpsmönnum hvort ferð hans væri ekki bara partur af kosningabaráttunni, en glotti þá þessu gamla óþolandi glotti um leið og hann þvertók fyrir það að hann væri í nokkurri einustu kosningabaráttu.
Glott sem þýddi: "Ég er auðvitað að ljúga, og þið vitið að ég er að ljúga, og ég veit að þið vitið það, og þið vitið að ég veit að þið vitið það, en þannig er það bara í hinni íslensku pólitík og þannig skulum við endilega hafa það áfram ..."
Í guðs bænum, fröken Samfylking, ekki heyja kosningabaráttuna á þessu úrelta plani!
Blogg
GLOTT KRISTJÁNS MÖLLERS
05:13 › 20. mars 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
