Allur hinn vestræni heimur er í uppnámi af því þar hefur nýfrjálshyggjan fengið að leika lausum hala.
Ísland er sérlega illa farið, því hér á landi fékk nýfrjálshyggjan óvenju frjálsar hendur.
Ungu sjálfstæðismennirnir hæddust að "eftirlitsiðnaðinum" sem þyrfti að skera rækilega niður, svo markaðurinn fengi notið sín til fulls.
En þrátt fyrir þessar staðreyndir, þá má alls ekki viðurkenna að neitt hafi verið að stefnunni.
Nei, segir Geir Haarde, það var ekkert að stefnunni. En gefur í skyn að einhverju fólki hafi kannski verið mislagðar hendur.
(Á nú kannski að fara að hengja Davíð??)
En ekkert að stefnunni.
Við skulum muna þetta þegar nær dregur kosningum.
Það var víst ekkert að stefnunni.
Þó við sitjum hér í brunarústum einmitt þeirrar stefnu.
Blogg
EKKERT AÐ STEFNUNNI, HA, GEIR?
20:07 › 2. mars 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
