ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.7° 4m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

VAR FASTEIGNAVERÐI HALDIÐ UPPI MEÐ HANDAFLI?

21:23 › 19. mars 2009


Það er nú löngu komið í ljós að fasteignaverð var orðið alltof hátt hér 2007 og hlaut að lækka allverulega.

En það er einhvern veginn litið á það sem einhvers konar "náttúrulega" bólu í þensluumhverfi að fasteignaverðið skyldi vera orðið alltof hátt.

Svoleiðis gerist bara í svona bólum, segir fólk.

Nú hef ég aftur á móti sannfrétt það (í heita pottinum í Vesturbæjarlauginni, hvorki meira né minna!) að í næstum tvö ár áður en fasteignabólan sprakk, þá hafi verðinu beinlínis verið haldið uppi með handafli af stærstu verktökunum.

Og þeir hafi með þessu komið í veg fyrir að verðið færi að lækka mun fyrr og á "hófsamlegri" hátt en núna er raunin.

Sé þetta raunin, ættu þá ekki þeir sem keyptu fasteignir á lokastigum fasteignabólunnar að eiga einhvers konar rétt?

Annaðhvort þannig að þeir geti beinlínis sótt rétt sinn gegn þeim sem svindluðu með fasteignaverðið, eða fái alla vega sérstaka meðferð í kerfinu af því þeir hafi verið blekktir til að kaupa á of háu verði?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?