Var það ekki í hinni rómuðu Vanity Fair-grein um daginn sem stóð að Íslendingar stunduðu það nú að kveikja í Range Róverunum sínum sem þeir keyptu í góðærinu, eða bruðlærinu?
Ég hef nú að vísu ekki heyrt um slíkar íkveikjur, en við vitum öll að Range Róverar eru eins konar tákn þess tíma sem nú er liðinn.
Og það var fundið upp á þá nafnið Game Óver í staðinn fyrir Range Róver, eins og frægt varð.
Með tilliti til þess þykir mér merkilegt hve mikið er aftur farið að bera á Range Róverum á götunum hér niðrí miðbæ þar sem ég bý.
Áðan gekk ég 70 metra vegalengd eftir Austurstræti og upp í Bankastrætið.
Mætti á leiðinni fjórum Range Róverum úti að rúnta.
Og svolítið ofar í Þingholtunum rakst ég strax á tvo til viðbótar.
Og allir svona frekar ánægðir með sig.
Blogg
NÓG AF RANGE RÓVERUM ALLS STAÐAR
17:09 › 19. mars 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
