Ég hef aldrei skilið almennilega hvað skortsala er. En bara nafnið eitt gefur til kynna að þetta sé eitthvað vafasamt fyrirbæri.
Er verið að selja skort? Eða er skortur á sölu? Hvort heldur er, þá er frekar fúl lyktin af því.
En þetta var alla vega eitt helsta skemmtiatriði peningaspekúlanta á Vesturlöndum á síðustu árum. Þar á meðal á Íslandi. Er ekki skortsala með íslensku krónuna ein ástæða fyrir ógöngum hennar upp á síðkastið?
Nú les maður að ekki aðeins hafi verið til skortsala, heldur hafi líka verið til eitthvert fyrirbæri sem heitir "nakin skortsala".
Og það hljómar satt að segja reglulega andstyggilega. Enda á "nakin skortsala" að hafa gengið af banka Lehman-bræðra dauðum, en það varð ef til vill til að ríða baggamuninn um líf og heilsu íslensku bankanna.
Í vísindunum eru menn þessi misserin að átta sig á því að fyrirbærið "naked singularity" gæti verið það allra hættulegasta í alheiminum. Það gæti jafnvel þurrkað alheiminn út alveg fyrirvaralaust.
"Singularity" er það fyrirbæri sem svartholin byggjast á, þau sem allt draga að sér, jafnvel sjálft ljósið, rétt eins og skortsala virðist hafa þurrkað upp stóran part peninga úr hagkerfi heimsins. Og breytti því í tröllaukið hagfræðilegt svarthol.
Singularity hefur yfirleitt verið þýtt sem "sérstæða" á íslensku, en ég er búinn að ákveða að "ruglpunktur" sé betri þýðing. Að minnsta kosti fyrir "nakta sérstæðu". Því þar ruglast allt í einum punkti.
Ekki ósvipað og hagkerfið ruglaðist við þessa "nöktu skortsölu".
En kannski "nakin skortsala" - ljótasta kvikindi fjármálakerfisins - sé bara sambærileg við "nöktu moldvörpurottuna" - ljótasta kvikindi dýraríkisins?
Blogg
LJÓTASTA KVIKINDI FJÁRMÁLAKERFISINS
13:05 › 19. mars 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
