ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.7° 4m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

FRELSUM FRELSIÐ!

15:18 › 19. mars 2009


Það er hárrétt athugað hjá Matthías Ásgeirssyni að það er fáránlegt að tala um að fólk frelsist þegar það undirgengst stranga trú á guð Gamla testamentisins og son hans úr Nýja testamentinu.

Sú trú getur verið alla vega, allt frá því að vera bara frekar viðkunnanleg yfir í að vera andstyggilega þröngsýn og blind á allt annað siðferði en sitt eigið.

En það er altént alveg ljóst að í þessu er engin "frelsun" fólgin.

Enda er þetta hugtak notað yfir það sem enskumælandi þjóðir kalla "born-again Christians" eða "endurfædda". Það er að sumu leyti eðlilegri orðanotkun.

Skrýtið að manni skuli ekki hafa dottið þetta í hug, þetta er svo augljóslega kolröng orðanotkun, þegar Matthías er búinn að benda okkur á það.

Við erum vonandi þegar byrjuð að frelsa orðið "frelsi" undan frjálshyggjumönnunum sem eignuðu sér það alltof lengi - en "frjálshyggjan" ætti réttu lagi að fá annað nafn; það má kannski auglýsa hér eftir réttara heiti á þessa hagfræðistefnu, sem kemur hinu göfuga frelsi (sem býr í brjósti hvers manns) ekkert við.

Tillögur?

Og þegar búið er að frelsa frelsið undan kaupskaparmönnunum, þá er kannski hægt að byrja að leggja drög að því að frelsa það líka undan ofsatrúarmönnunum.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?