ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.7° 4m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

BURT MEÐ BORÐTENNIS-BLAÐAMENNSKUNA

10:13 › 19. mars 2009


Framsóknarflokkurinn og síðan Tryggvi Þór Herbertsson hafa stungið upp á því sem lausn í efnahagsþrengingum vorum að 20 prósent allra skulda í landinu, skilst mér, skuli afskrifa.

Þetta hljómar í fyrstu vel, ekki síst vegna þess að maður ímyndar sér að hagkerfið gæti tekið kipp ef unnt væri að fara að þessu ráði.

En hagfræðingar á vegum ríkisstjórnarinnar, og fleiri, taka þessari hugmynd fjarri - þetta sé bara tóm fásinna.

Og vissulega er það rétt að ef eitthvað hljómar of gott til að vera satt, þá er það venjulega of gott til að vera satt.

En samt hefur þessi hugmynd ekki viljað drepast.

Nú er að sönnu komið rækilega - og hryggilega - á daginn að hagfræði er ekki nákvæmnisvísindi. Það má greinilega deila um flest allt sem lýtur að hagstærðum og hagfræðilegum ráðum.

En maður skyldi ætla að það hljóti að vera hægt að reikna út í eitt skipti fyrir öll hvort svona róttækt ráð er mögulegt eða ekki.

Vill þá kannski einhver fjölmiðill taka að sér að gera það? Í stað þess að hleypa bara talsmönnum niðurfellingar upp á dekk öðruhvoru og leyfa þeim að útlista sínar skoðanir, og hleypa svo öðrum að á eftir sem fordæma allt saman.

Svoleiðis pingpong blaðamennska fram og til baka skilar okkur engu - eða borðtennisblaðamennska á góðri íslensku.

Burt með hana, takk. Notið frekar, góðu blaðamenn, tíma ykkar og ómælda orku til að setja ykkur sjálfir inn í þessa leið og hversu raunhæf eða óraunhæf hún er.

Svo annaðhvort sé hægt að taka málefnalega afstöðu til hennar, eða blása hana bara út af borðinu.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?