Sjálfstæðisflokkurinn hegðar sér stórundarlega þessa dagana.
Á Alþingi gekk allt út á málþóf og einhverja fundarskapaklæki. Sjálfstæðisþingmennirnir stóðu flissandi í ræðusal þegar félagarnir gengu lengst í einhverjum Morfísbrellum.
Flokkurinn tekur ekki í mál að viðurkenna eigin þátt í Davíðshruninu. Einn og einn þingmaður hafa vissulega látið orð falla í þá átt en þeir tala ekki á vegum flokksins.
Núna hefur flokkurinn svo eignast nýtt áhugamál, sem er að koma í veg fyrir stjórnlagaþing óháð Alþingi. Ja, svei.
Og í prófkjörunum raða þingmennirnir sér í öll efstu sætin. Endurnýjun gengur illa hjá Samfylkingunni, en hjá Sjálfstæðisflokknum er alls ekki um hana að ræða. Sjö þingmenn raða sér í sjö efstu sætin í prófkjörinu í Reykjavík.
Og frjálshyggjumennirnir, fylgismenn þeirrar stefnu sem á mestan þátt í hruninu ekki aðeins hér, heldur einnig um víða veröld, þeir fá fínt fylgi hjá sjálfstæðismönnum.
Illugi nafni minn Gunnarsson er vissulega óvitlaus, en hann er samt frjálshyggjumaður og ekkert annað. Hann náði efsta sætinu.
Og Pétur H. Blöndal, æðsti prestur frjálshyggjunnar, hann nær þriðja sæti! Maðurinn sem sagði um yfirtöku Davíðs á Glitni að það væri "dúndrandi bissniss fyrir ríkið".
Og þeir Sigurður Kári og Birgir Ármannsson sem einu sinni voru ungir frjálshyggjumenn en eru nú miðaldra frjálshyggjumenn - fyrir hvað var verið að verðlauna þá með góðum árangri í prófkjörinu?
Sauðslega tryggð sína við frjálshyggjuna?
Blogg
UNDARLEGUR SJÁLFSTÆÐISFLOKKUR
15:22 › 17. mars 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
