ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 5m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

STJÓRNLAGAÞINGIÐ MÁ EKKI FARA ONÍ SKÚFFU

12:07 › 17. mars 2009


Þá er farið að grenja undan kostnaði við stjórnlagaþingið. Það var svosem auðvitað. Það er nýjasta vopn sjálfstæðismanna sem vilja alls ekki að bévuð "þjóðin" komi neitt nálægt nýrri stjórnarskrá. Þingmenn eigi að sjá um það, einir manna.

Vissulega er ástæða til að fylgjast með að kostnaður fari ekki úr böndunum.

Ég var sjálfur þeirrar skoðunar að ekki væri endilega nauðsynlegt að halda umfangsmiklar kosningar fyrir stjórnlagaþingið, heldur var að gæla við að unnt væri að skapa sátt um að skipa með einhverjum hætti á þingið.

Svoleiðis hugmyndir virðast ekki hafa fengið mikið brautargengi. Þá þýðir auðvitað ekki annað en kjósa, og mér þykir alla vega ágætt að nú skuli vera talað um 40 stjórnlagaþingmenn en ekki 63 eins og fyrst var gert. Það held ég hafi verið algjör óþarfi. 40 valinkunnir einstaklingar, kosnir af þjóðinni og með góða sérfræðinga sér við hlið, er alveg nóg.

En umfram allt, þá má ekki láta sjálfstæðismenn komast upp með að leggjast svo á hugmyndir um stjórnlagaþingið að það dagi uppi.

Stjórnlagaþing og ný stjórnarskrá munu ekki redda öllum hlutum í einni svipan. En þetta er sjálfsagður réttur okkar sem þingmenn eiga aldrei að fá tækifæri til að stinga oní skúffu.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?