ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 5m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

Í UPPHAFI VAR LÓGOS

19:49 › 17. mars 2009


Guðmundur Andri Thorsson skrifaði fína grein í Fréttablaðið í gær, mánudag, um endalok Baugs. Þar lagði hann út af nafni Baugs og hvernig baugshugtakið var notað í hinni fornu ásatrú og Eddukvæðum.

Og eins og hann rakti var bara vel við hæfi að baugurinn væri tákn útrásarvíkinganna - að minnsta kosti meðan útrásin var raunveruleg og garpsskapur víkinganna sannur.

En rétt eins og hinir heiðnu víkingar okkar til forna máttu að lokum undan síga fyrir kristninni, þá hefur Baugur nú lotið í lægra haldi fyrir Lógos - lögmannsstofunni sem af einkennilegum hroka hefur tekið sér nafn "orðsins" úr Jóhannesarguðspjalli.

"Í upphafi var Orðið og Orðið var hjá guði og Orðið var guð."

Þannig skrifaði Jóhannes og gríska orðið sem þýtt er með hinu íslensku orði, en þýðir raunar fleira, er "logos".

Kannski dómarinn, sem valdi starfsmann Lógos sem skiptastjóra Baugs, hafi gert það af guðfræðilegum ástæðum frekar en nokkuð annað.

Til að sýna að guð hefði sigrað heiðingjana og skipti nú hrundu ríki þeirra.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?