ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 5m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

HVERJIR SITJA Í HEITU POTTUNUM

08:40 › 8. febrúar 2009


Í grein í Sunday Times um helgina um endalok Baugsveldisins í Bretlandi er þess getið að íslenska útrásin hafi verið rekin áfram af örlitlum hópi manna sem sitji saman í heita pottinum í sundlaugunum þrisvar í viku.

Þetta er ekki rétt.

Ég sæki heitu pottana. Frá því hrunið varð, sem þessi örlitli hópur manna átti sinn stóra og ófrávíkjanlega þátt í, þá er ekki ofmælt að heitu pottarnir hafi beinlínis haldið manni gangandi.

Og þó ég hafi farið í ýmsar laugar síðustu mánuði hef ég aldrei séð þessa menn þar.

Nei, í heitu pottunum situr íslenskur almenningur og hvílir sig andartak frá því að borga skuldirnar þeirra.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?