Þessi færsla virðist sem betur fer byggð á misskilningi einhverra Breta, sjá athugasemd neðst.
- - - - - - -
Ég get út af fyrir sig alveg gúterað að skilanefnd Landsbankans skuli hafa talið akk í því að fá Jón Ásgeir Jóhannesson til að sitja í stjórnum nokkurra þeirra verslunarkeðja sem Baugur átti en eru nú í reynd í eigu íslenska ríkisins.
Því ég trúi því alveg að hvað sem öðru líður, þá geti Jón Ásgeir verið flinkur í að reka búðir.
Og aðstoð hans við að halda búðunum á floti yfir kreppuna í Bretlandi geti því aukið eitthvað möguleikana á því að hægt verði að selja umræddar verslunarkeðjur fyrir gott verð eftir einhver misseri.
Og grynnt þannig á skuldum okkar allra.
En það sem ég skil ekki er af hverju Jón Ásgeir kýs að taka 3,3 milljónir á mánuði fyrir þessa aðstoð sína við illa stadda íslenska þjóðina.
Og þyrlu.
Maðurinn sem í haust sagðist tilbúinn til að koma heim og vinna á lyftara í Bónus til að hjálpa þjóðinni að komast út úr erfiðleikunum.
- - - -
Að svo mæltu tek ég mér annað leyfi frá bloggi. Ég hef eiginlega ekki tíma til að blogga svona mikið og þó ég hafi ekki ráðið við mig undanfarna viku eða svo, þá stóð í rauninni aldrei til að byrja upp á nýtt af fullum krafti.
Ég óska okkur öllum velfarnaðar.
Munum að með samstöðunni vinnum við bug á öllum erfiðleikum.
Og þótt 2009 verði kannski erfiðasta ár Íslandssögunnar í langan tíma, þá eru nú þegar liðin af því einn mánuður og ein vika.
Svo þetta hefst allt!
- - - - - -
SÍÐARI VIÐBÓT
Það er sjálfsagt að bæta hér við að lokum að Jón Ásgeir dró áðan í fréttum Stöðvar 2 afdráttarlaust til baka að hann fengi þessar 3,3 milljónir á mánuði fyrir stjórnarsetuna.
Talan, sem komin var af breskum vef, væri alröng. Í raun næmi þóknunin sirka 300 þúsund krónum á mánuði. Upphæðin næmi 3,3 milljónum á ári, ekki á mánuði.
Og engin þyrla eða önnur fríðindi.
Það verður að segjast að það er töluvert annað mál!
Blogg
ÉG SKIL EKKI
14:55 › 8. febrúar 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
