Á ríkið að útdeila listamannalaunum?
Þetta er spurning sem má deila um, en hefur líka oft verið svarað:
Já, það hefur verið almenn sátt um það í samfélaginu að ríkið sæi nokkrum af merkustu listamönnum sínum fyrir tímabundnum launum, svo og svo lengi til að auðvelda þeim að vinna að listsköpun.
Nú hafa nokkrir skríbentar netsins yst á hægri kanti agnúast út í það að Hallgrími Helgasyni skuli hafa verið úthlutað þriggja ára starfslaun.
Ekki vegna þess að skríbentarnir telji hann ekki nógu góðan höfund til að eiga þetta skilið.
Nei - heldur vegna þess að hann tók þátt í mótmælunum í Reykjavík í janúar.
Þessir skríbentar telja bersýnilega að með listamannalaunum séu ráðamenn að kaupa sér þögn og velvild listamanna.
Það er gott að vita að hugarfarið er svona.
Að ekki megi gagnrýna herrann sem útdeilir fénu!
Blogg
ÞAÐ SEM EKKI MÁ
12:07 › 7. febrúar 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
