Þetta hér er alveg ótrúleg frétt, ef sönn reynist - sem ég hef enga ástæðu til að efast um.
Að Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri hafi verið búinn að fá lánaða frá Danmörku "allmarga" sér útbúna og brynvarða óeirðabíla þegar mótmæli gegn ríkisstjórninni stóðu sem hæst.
Þeir voru víst komnir niður á hafnarbakka í Árósum, þegar Björn Bjarnason þáverandi dómsmálaráðherra frétti af þessu uppátæki og stöðvaði það að höfðu samráði við ríkisstjórnina.
Gott hjá Birni.
Enda er Björn, hvað sem öðru líður, vel gefinn maður.
Og hefur áttað sig á hvað þetta var brjálæðislegt!
En hvernig stóð á að Haraldur Johannessen lét sér detta í hug annað eins rugl?!
- - - - -
Síðari viðbót:
Ekki er nema sanngjarnt að geta þess að í athugasemd sem Halli Jó hefur nú birt kemur fram að allar hugmyndir um óeirðabíla hafi verið mótaðar í samvinnu við dómsmálaráðuneytið. Og hann sakar RÚV um rógburð.
Ekki veit ég hverjir voru með í að vilja útvega þessa bíla. En bara sú staðreynd að þetta stóð til er skelfileg!
Blogg
ÓTRÚLEG FRÉTT AF ÓEIRÐABÍLUM
12:26 › 6. febrúar 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
