Nú er þess beðið að Davíð Oddsson komi heim frá London og þóknist að svara beiðni forsætisráðherra um að hann segi af sér.
Ekki skil ég af hverju Davíð er svona lengi að hugsa. Hann var fljóthuga hér í gamla daga. Nú þarf hann marga daga til að hugleiða mál, sem hann hlýtur samt að hafa leitt hugann að síðustu mánuði.
En þetta átti annars ekki að snúast um Davíð.
Heldur hina Seðlabankastjórana tvo.
Eirík og Ingimund.
Geta þeir virkilega ekki svarað beiðni forsætisráðherra án þess að Davíð svari fyrst, og í raun fyrir þá?
Hafa þeir ekki sjálfstæðan vilja?
Ætla þeir endanlega að festa sig í neðanmálsgrein sögunnar sem leikbrúður Davíðs?
Blogg
HAFA INGIMUNDUR OG EIRÍKUR EKKI SJÁLFSTÆÐAN VILJA?
15:18 › 5. febrúar 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
