Þessi frétt er jákvæð, að endurskoða eigi starfsemi Varnarmálaskrifstofu. Hún átti að gleypa tvo milljarða á þessu ári.
Sem mestallt átti að renna í eitthvert hernaðarbrölt.
Út af fyrir sig gott hjá Össuri.
En má ekki ganga lengra?
Má ekki hætta alveg við að borga stórfé til ýmissa þjóða fyrir þessa loftrýmisgæslu næstu tvö árin eða svo?
Það gæti sparað ríkinu mörg hundruð milljónir, trúi ég, sem við þurfum sárlega á að halda fyrir heilbrigðiskerfið á næstunni.
Eða ýmislegt annað brýnna en að orrustuþotur þjóti hér um loftin á nokkurra vikna eða mánaða fresti.
Til varnar gegn hverju?
Eigum við ekki bara að taka sénsinn næstu tvö árin að það muni öngvar sprengjuflugvélar koma til árása á okkur?
Og nota peningana í annað.
Blogg
ÆTTUM VIÐ AÐ TAKA SÉNSINN?!
18:24 › 5. febrúar 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
