ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 5m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

VARLA VILJA VINSTRI GRÆN DOLLAR?

12:31 › 4. febrúar 2009


Þrátt fyrir góðar undirtektir hjá systurflokki VG um að kanna hvort Norðmenn myndu hugsanlega leyfa Íslendingum að nota norsku krónuna, þá eru ótal meinbugir á þeirri hugmynd.

Vissulega vilja andstæðingar ESB í Noregi kosta ýmsu til að Íslendingar gangi ekki í sambandið, en þegar til kastanna kemur munu þeir alveg áreiðanlega ekki vilja hræ íslensku krónunnar í lest sína.

Vinstri græn verða að horfast í augu við það.

Að íslenska krónan er ónýtt tól, og það er ekki völ á mörgum öðrum gjaldmiðlum í staðinn.

Ekki vilja VG taka upp dollar?




ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?