ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 5m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

HAMINGJAN Í KREPPUNNI

14:01 › 3. febrúar 2009


Sú var tíðin að við Íslendingar töldum okkur hamingjusömustu þjóð í heimi.

Það var reyndar áður en nýfrjálshyggjan náði heljartökum á þjóðinni og okkur var talin trú um að hamingjan væri í því fólgin að verða "ríkasta þjóð í heimi".

Hver ætli hamingjuprósentan yrði ef málið yrði kannað núna?

Á heimasíðu Háskóla Íslands er hérna að finna afar fínan fyrirlestur sem Páll Matthíasson geðlæknir flutti nú nýverið um hamingjuna, í fyrirlestraröð um kreppu og hamingju.

Sérlega athyglisvert finnst mér hvað hugmyndir Páls ríma vel við aldeilis frábæra bók sem litla bókaforlagið mitt gaf út fyrir jólin í fyrra - Hnotið um hamingjuna, eftir Harvard-prófessorinn Daniel Gilbert. Sú bók fékk ekki þá athygli sem hún átti skilið, því hún er ekki bara skörp greining á því hvernig við lítum á hamingjuna, heldur líka alveg frábærlega skemmtileg.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?