ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 5m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

1262

11:26 › 3. febrúar 2009


Steingrímur J. Sigfússon ætlar greinilega að róa að því öllum árum að koma okkur í Noreg.

Það er skemmtileg tilraun.

Kannski verður Nýi sáttmáli undirritaður 2009 rétt eins og Gamli sáttmáli 1262.

Þótt ég telji reyndar að til lengdar dugi okkur ekki annað en Evrópusambandið (amk láta á það reyna með aðildarumsókn), þá væri strax skárra að fá norsku krónuna en þennan krónuræfil okkar sem lét endanlega lífið við Davíðshrunið.

Norðmenn eru líka skynsöm þjóð og við hefðum ekki nema gott af því að komast í samband við skynsamt fólk eftir alla óskynsemina hér undanfarið.

Nema hvað ég kann ekki við að Norðmenn skuli enn burðast við að halda úti kóngi.

Það vekur mér illan grun um að kannski sé skynsemin bara á yfirborðinu.

Því kóngar eru úrelt þing með öllu.





ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?