Nú virðist ljóst að sú skýrsla sem Höskuldur Þórhallsson taldi svo mikilvægt að bíða eftir í gær mun ekki snerta Seðlabankamál á Íslandi með neinum sérstökum hætti.
Og það virðist líka ljóst að þetta hafi bæði Höskuldur og sjálfstæðismenn vitað fullvel strax í gær.
Allt tal um vandaðan undirbúning var því bara fyrirsláttur fyrir pólitísk bellibrögð og smjörklípur.
Enda fór það svo sem ekkert milli mála í hinu algjörlega makalausa viðtali við Höskuld í Kastljósi í gær.
Einhver aumkunarverðasta frammistaða sem ég hef lengi séð.
Það sem sjálfstæðismönnum og framsóknarmönnum lánaðist með þessu var að spæla ríkisstjórnina, vissulega.
En þeir drógu líka stórlega úr trúverðugleika okkar allra.
Sem var ekki beint það sem við þurftum á að halda.
Mætti ég fá að heyra í Sigmundi Davíð sjálfum um þetta?
En Birgi Ármannssyni er náttúrlega sama um það í sinni prófkjörsbaráttu og heiftarvörn fyrir leiðtoga lífs síns.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn horfir á þetta í forundran.
Og er búinn að fresta komu sinni.
Hann átti náttúrlega ekki von á að maður af kalíber Höskuldar Þórhallssonar kæmist upp á dekk.
Þeir Höskuldur og Birgir og félagar hafa skaðað orðstír okkar enn frekar en orðið var.
Gott dagsverk í gær, eða hvað?
Sveiattan!
Blogg
SVEIATTAN!!
10:47 › 24. febrúar 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
