ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 5m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

ÓTRÚLEGUR BARNASKAPUR - EÐA "ÚTSMOGIÐ" PLOTT?

16:59 › 23. febrúar 2009


Ég veit ekki hvað í ósköpunum hefur vakað fyrir Höskuldi Þórhallssyni.

Segjum að það sé rétt hjá honum að það sé eitthvað í væntanlegum tillögum ESB sem máli skipti varðandi Seðlabankann, og geti jafnvel talist gagnlegt.

Þá hefðu hann og Framsóknarflokkurinn átt að leggja það fyrir ríkisstjórnarflokkana. Hvort þeir vildu taka þátt í að fresta málinu?

En að ganga bara formálalaust í lið með Sjálfstæðisflokknum í málinu, m.a.s. gegn sínum eigin varaformanni, sýnir ótrúlegan pólitískan barnaskap.

Og vanvirðingu við fólkið í landinu sem þráir að þessari vitleysu ljúki og Seðlabankinn verði rýmdur.

Já, ég leyfi mér óhikað að tala í nafni "fólksins í landinu"!

Og ef Sigmundur Davíð hefur lagt blessun sína yfir þetta sýnir það engu síðri barnaskap hans.

Nema þetta sé bara "útsmogið" plott til að komast í faðm Sjálfstæðisflokksins.

Alla vega lofar þetta vesin ekki góðu um "Nýju Framsókn".

Úff!



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?