14:29 › 23. febrúar 2009
Ég skal játa að ég þekkti ekki Höskuld Þórhallsson í sjón fyrr en hann varð formaður Framsóknarflokksins í 5 mínútur. Virtist geðslegur maður.
Næst brá Höskuldi fyrir í fréttum eftir að hafa krafist þess á innsoginu úr ræðustóli Alþingis að nú yrðu öll vettlingatök notuð í baráttunni við kreppuna.
Nú er fimm mínútna formaðurinn kominn í fréttirnar sem nýjasti liðsmaður Davíðs Oddssonar.
Nema Höskuldur hafi mismælt sig þegar hann greiddi atkvæði á fundi efnahags- og viðskiptanefndar?



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
