ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 5m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

GOTT SAMRÁÐ

18:18 › 2. febrúar 2009


Þetta samráð grasrótarhreyfinga er fínt mál. Ég veit ekki hvort þetta er hugsað sem undirbúningur sameiginlegs framboðs, en það kemur væntanlega í ljós fyrr en síðar.

Alla vega er gott að þessar hreyfingar tali saman. Þær eru örugglega sammála um flesta hluti, þegar málið snýst fyrst og fremst um nauðsynlegar lýðræðisumbætur, og því væri fráleitt að eyða kröftunum.

Sem minnir mig á, veit einhver hvort núverandi ríkisstjórn getur með einfaldri lagasetningu afnumið hinn óréttláta fimm prósenta þröskuld sem ný stjórnmálaöfl þurfa að klofa yfir áður en þau komast á þing?

Ef það er ekki flóknara en svo, þá þarf auðvitað að vera búið að því fyrir kosningarnar í apríl.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?